Rannsóknasetur um norðurslóðir kynnir í samstarfi við NEXUS málþing um framtíð olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Málþingið verður haldið þriðjudaginn 12. maí frá 14:00-16:30 í Háskóla Íslands, Háskólatorgi 105.
Bráðnun íss auk annarra umhverfisbreytinga á norðurslóðum hefur opnað á umtalsverða möguleika tengda efnahagsþróun. Nýting hugsanlegra olíuauðlinda kann að skila af sér fjárhagslegum gróða, en margt er enn á huldu um þær efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu áhættur sem kunna að blasa við fjárfestum og íbúum norðurslóða.
Á þessu málþingi verður leitað eftir fjölbreytilegum sjónarhornum og verða málin rædd af fulltrúum atvinnulífsins , fræðasamfélagsins og ungliðum þeirra stjórnmálahreyfinga sem eiga sæti á Alþingi. Velt verður upp spurningum á borð við: Hvert stefnir olíuleit og vinnsla á Drekasvæðinu? Hvaða áhrif hefur óstöðugt olíuverð? Hvað með öryggismálin? Hefur áhugi fjárfesta eða pólitískur vilji eitthvað breyst? Hvernig meta tryggingafélög þessa þróun?
Nánari upplýsingar, og listi yfir þátttakendum, eru hér að neðan. Skráðu þátttöku þína á Facebook viðburðinum.